Erlent

Fimm fórust í bílsprengjuárás í Bagdad

Fimm létu lífið og 22 særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan sjúkrahús í Sadr-borg, stærsta sjíahverfis Bagdad í Írak í morgun. Þá liggja fjórir í valnum eftir svipaða árás í sjíabænum Hillah, sem er um eitt hundrað kílómetra suður af Bagdad.

Öfgamenn hafa beint spjótum sínum í sívaxandi mæli að sjíum en 300 hafa dáið í árásum á bæi þeirra undanfarna viku. Sjíarnir hafa svo látið súnnía gjalda fyrir ódæðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×