Erlent

Harðir bardagar í Mogadisjú

Reykur yfir Mogadisjú. Þyrla var skotin niður í gær.
Reykur yfir Mogadisjú. Þyrla var skotin niður í gær. MYND/AFP

Uppreisnarmenn í Mogadisjú, höfuðborg Sómalíu, skutu í gær niður herþyrlu í verstu átökunum í borginni síðan herskáir íslamistar voru hraktir þaðan í byrjun ársins.

Tugir manna hafa fallið í átökunum undanfarna sólarhringa, en þar eigast við uppreisnarmenn úr herbúðum manna sem studdu yfirráð íslamista, og hermenn bráðabirgðastjórnar landsins og bandamenn þeirra úr her grannlandsins Eþíópíu.

Samkvæmt yfirlýsingu frá Alþjóða Rauða krossinum eru þessi átök þau verstu í borginni í 15 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×