Erlent

Ræður ekki við mat og drykk

Fótboltahetjan Diego Maradona var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttöku sjúkrahúss á fimmtudaginn. Ástæða innlagnarinnar var sögð „ofát og alkóhólismi“.

Maradona fór í magaminnkun í mars 2005. Skurðlæknir hans lagði hart að fótboltamanninum að sækja eftirmeðferð. Maradona lét hins vegar aldrei sjá sig aftur.

Upp á síðkastið hefur Maradona sést á næturklúbbum í Búenos Aíres í heimalandi sínu Argentínu og þótt í nokkuð miklum holdum.

Einkalæknir Maradona sagði vandamálið ótengt kókaínneyslu.


Tengdar fréttir

Um sautján prósenta ávöxtun

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 16,9 prósent á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 6,5 prósenta hækkun á sama tíma árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×