Erlent

Fangaflugið brot á mannréttindum

Meirihluti þingmanna Evrópuþingsins taldi skýrsluna nægilega vel rökstudda.
Meirihluti þingmanna Evrópuþingsins taldi skýrsluna nægilega vel rökstudda. MYND/AP

Evrópuþingið samþykkti í gær lokagerð skýrslu um leynilegt fangaflug á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA með grunaða hryðjuverkamenn. Þeir voru fluttir til leynilegra fangelsa í Evrópu og víðar þar sem grunur leikur á að þeir hafi mátt sæta pyntingum.

Nefnd á vegum Evrópuþingsins hefur rannsakað málið í meira en ár og kemst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórnir sumra Evrópusambandsríkja hafi vitað af fangafluginu, þrátt fyrir að það sé brot á evrópskum mannréttindasáttmálum.

Einnig segir í skýrslunni að stjórnvöld í sumum Evrópuríkjum hafi ekki sýnt nefndinni samvinnu við rannsóknina. Þá segir í skýrslunni, eins og þingið samþykkti hana, að Javier Solana, yfirmaður utanríkismála hjá Evrópusambandinu, hafi „látið ógetið“ um ýmislegt í vitnisburði sínum til nefndarinnar.

Skýrslan var samþykkt á Evrópuþinginu, sem að þessu sinni kom saman í Strassborg í Frakklandi, með 382 atkvæðum gegn 256, en 72 þingmenn sátu hjá.

Þingmenn voru engan veginn á eitt sáttir um niðurstöðuna, því ýmsum þótti nefndin ekki hafa nægilega sterkar sannanir fyrir ásökunum sínum. Orðalagið var mildað nokkuð frá því nefndin sendi frá sér lokadrög að skýrslunni, en það dugði ekki til þess að hún hlyti einróma samþykki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×