Erlent

Clinton vinsælli en Giuliani

Hillary Clinton. Demókratinn Barack Obama kemur næst á eftir Clinton með sextán prósent. Næsti repúblikani á eftir Giuliani er John McCain með sautján prósent.
Hillary Clinton. Demókratinn Barack Obama kemur næst á eftir Clinton með sextán prósent. Næsti repúblikani á eftir Giuliani er John McCain með sautján prósent. MYNDAFP

Hillary Clinton í flokki Demókrata, og Rudy Giuliani, í flokki Repúblikana, hafa afgerandi forskot í heimaborg sinni, New York, framfyrir aðra keppinauta um tilnefningar sinna flokka til forsetaframboðs segja nýjar kannanir.

Þegar fylgi þeirra er skoðað gagnvart hvoru öðru hefur Clinton fimmtíu prósenta fylgi á móti fjörutíu prósenta fylgi Giuliani og virðist Demókrataflokkurinn því hafa vænlegri stöðu í ríkinu.

Árið 2000 stefndi í að Clinton og Giuliani myndu mætast þegar Clinton bauð sig fyrst fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings en Giuliani dró sig úr baráttunni vegna krabbameins og hjónaskilnaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×