Erlent

Mikil hætta á hryðjuverkum

Hættan á hryðjuverkaárásum í Evrópu er mikil og fer stöðugt vaxandi. Þetta stað-hæfir franskur rannsóknardómari, sem hefur sérhæft sig í hryðjuverkamálum.

Dómarinn Jean-Louis Bruguiere tjáði AP-fréttastofunni í New York að sérstök ógn stafi um þessar mundir af nýtilkomnu bandalagi milli al-Kaída-hryðjuverkanetsins og norður-afrískra hryðjuverkasamtaka sem þekkt eru undir frönsku skammstöfuninni GSPC.

Talið er að þetta nýja bandalag hafi einkum áhuga á að koma áformum sínum fram á þéttbýlum svæðum Evrópu, og beinist áhugi þeirra einkum að Frakklandi, Ítalíu og Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×