Erlent

Þróunarkenningin aftur leyfð

Skólaráðið í Kansas í Bandaríkjunum hefur heimilað kennurum í ríkinu að kenna þróunarkenningu Darwins, en það hafa þeir ekki mátt gera í átta ár nema hafa þann fyrirvara að kenningin sé ósönnuð með öllu.

Mikið grín hefur verið gert að skólaráðinu í Kansas fyrir þessa afstöðu, en nú hafa orðið mannabreytingar í ráðinu þannig að demókratar og hófsamir repúblikanar eru komnir í meirihluta.

Atkvæði féllu þannig að sex ráðsmenn samþykktu breytinguna en fjórir vilja enn ekki sjá þróunarkenninguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×