Ekki öll nótt úti enn fyrir West Ham 21. apríl 2007 15:49 Leikmenn West réðu ekki við sig og fögnuðu Bobby Zamora innilega, eftir að hann hafði skorað gegn Everton í dag, þrátt fyrir að Alan Curbishley hafi sagt sínum mönnum að halda fagnaðarlátunum í lágmarki. MYND/Getty
Eggert Magnússon og félagar í West Ham unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag og er nú þremur stigum frá því að komast upp úr fallsæti deildarinnar. Á sama tíma gerðu helstu keppinautarnir, Charlton og Sheffield Utd., gerðu 1-1 jafntefli. Fjölmargir leikir fóru fram í Englandi í dag og er Watford fallið í 1. deild. Það var Bobby Zamora sem skoraði eina mark leiksins strax á 13. mínútu leiksins í dag, en hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skorað mörg mikilvæg mörk fyrir félagið. Charlton missti af dýrmætu tækifæri til að komast upp fyrir Sheffield United og úr fallsæti með því að ná aðeins jafntefli við þessa erkifjendur sína á heimavelli í dag. Talal El Karkouri kom Charlton yfir en Jon Stead jafnaði metin fyrir Sheffield Utd. með marki sem gæti reynst gríðarlega þýðingarmikið þegar uppi er staðið. West Ham er nú með 32 stig í 19. sæti, Charlton með 33 stig í 18. sæti og Sheffield Utd. er í því 17. með 35 stig. Wigan er með 35 stig og Fulham 36 og því alls ekki sloppin við fallið ennþá. Wigan tapaði fyrir Liverpool á Anfield, 2-0, þar sem Dirk Kuyt skoraði bæði mörkin. Heiðar Helguson sat allan tímann á varamannabekk Fulham sem gerði 1-1 jafntefli við Blackburn. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson léku allan leikinn fyrir Reading sem vann Bolton á útivelli, 3-1. Kevin Doyle var hetja Reading með því að skora tvívegis á síðustu fimm mínútum leiksins og Stephen Hunt bætti við þriðja markinu þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Ótrúlegar lokamínútur á Reebook-vellinum í Bolton. Þá gerðu Watford og Man. City 1-1 jafntefli og þar með er ljóst að Watford á ekki lengur tölfræðilega möguleika á að halda sæti sínu í deildinni.
Enski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Dagskráin: Generalprufa enska landsliðsins fyrir HM Sport „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Fleiri fréttir Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Sjá meira