Mourinho: Mikel var kóngurinn 20. maí 2007 13:38 John Obi Mikel hafði betur í baráttunni gegn Paul Scholes í bikarúrslitaleiknum í gær. MYND/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að frammistaða nígeríska miðjumannsins John Obi Mikel í bikarúrslitaleiknum gegn Chelsea í gær hafi verið ótrúleg og að "strákurinn" hafi verið kóngurinn í leiknum. Mourinho hélt einnig áfram að tala um hvernig tímabilið hjá liði sínu hefði getað orðið án meiðslavandræða. Enskir fjölmiðlar segja að helsta ástæðan fyrir slökum leik Man. Utd. hafi verið sú staðreynd að miðjumennirnir Paul Scholes og Cristiano Ronaldo hafi aldrei komist í takt við leikinn. Mourinho segir að það hafi ekki síst verið vegna stórleiks John Obi Mikel, sem varð tvítugur fyrir aðeins nokkrum vikum. "Að mínu mati var það strákur sem var kóngurinn í leiknum," sagði Mourinho og átti þar við hinn barnslega Mikel, sem kom til Chelsea síðasta sumar frá norska liðinu Molde. "Hann stjórnaði leiknum eins og hann vildi, allt spil fór í gegnum hann og hann réði hraðanum algjörlega. Hann var ótrúlegur," segir Mourinho. Portúgalski knattspyrnustjórinn notaði einnig tækifærið og sagði að miðað við öll þau meiðslavandræði sem liðið hafi orðið fyrir í vetur væru tveir bikartitlar, undanúrslit í Meistaradeild og 2. sæti deildarinnar árangur sem væri vel viðunandi. "Við getum spurt okkur hvað við hefðum getað gert ef við hefðum ekki verið að missa leikmenn í meiðsli viku eftir viku. Hvað ef Peter Cech hefði ekki verið frá í fjóra mánuði, ef John Terry hefði verið með allt tímabilið, ef Richardo Carvalho hefði getað spilað alltaf, ef Michael Essien hefði ekki neyðst til að spila í vörninni og Robben og Ashley Cole hefðu ekki þurft að spila haltir. Hvaða árangri hefðum við getað náð án þessa vandræða?" spurði Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Sjá meira