Cantona: Stuðningsmenn Man. Utd. eru einstakir 23. apríl 2007 11:00 Eric Cantona er í guðatölu á meðal stuðningsmanna Man. Utd. MYND/Getty
Hinn franski Eric Cantona, lifandi goðsögn hjá Manchester United, segir að stuðningsmenn liðsins eigi stærstan þátt í frábærri frammistöðu Cristiano Ronaldo í vetur. Telur Cantona að Ronaldo geti þakkað þeim fyrir að hafa verið valinn besti leikmaður deildarinnar í gær. Cantona segist ekki hafa búist við Ronaldo jafn sterkum í ár og raun hefur borið vitni, sérstaklega í ljósi uppákomunnar í leik Portúgals og Englands á HM síðasta sumar þar sem hann átti sinn þátt í að fá Wayne Rooney af vellinum. “Það hefðu ekki allir stuðningsmenn á Englandi brugðist við á sama hátt og stuðningsmenn Man. Utd. gerðu. Þeirra stuðningur gagnvart Ronaldo er sá sami og ég fékk eftir að ég snéri úr keppnisbanninu langa,” sagði Cantona og átti þar við níu mánaða langa bannið sem hann fékk fyrir að sparka í áhorfanda á sínum tíma. “Fólk gerir sér ekki alveg grein fyrir því hversu mikilvægt það er fyrir leikmenn að finna þennan stuðning. Það er mikil sálfræði fólgin í stuðningi og það er mikilvægt að leikmenn finni fyrir honum. Það þýðir að manni er treyst og það gefur aukið sjálfstraust,” sagði Cantona og bætti við: “Á erfiðum stundum, eins og Ronaldo upplifði eftir HM í sumar, er þetta sérstaklega mikilvægt.”
Enski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Fleiri fréttir Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Sjá meira