Erlent

Hverfið opnað almenningi

Kristjanía í Kaupmannahöfn hefur lengi verið umdeilt.
Kristjanía í Kaupmannahöfn hefur lengi verið umdeilt.

Íbúar í Kristjaníu í Danmörku hafa samþykkt tillögur stjórnvalda um að koma aukinni reglu á húsnæðismál hverfisins til að stuðla að frekari uppbyggingu. Stofnuð verður deild sem mun annast rekstur bygginganna í hverfinu og leigja út íbúðir. Vilja stjórnvöld með þessu laða almenning til Kristjaníu og gera hverfið opnara en það hefur verið.

Þrátt fyrir að hafa samþykkt tillöguna ætla íbúar Kristjaníu ekki að hætta við málaferli sín gegn stjórnvöldum varðandi eignarrétt á sumum byggingum í hverfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×