Arsenal marði Sunderland Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. október 2007 12:55 Philippe Senderos skoraði annað mark Arsenal snemma í leiknum. Nordic Photos / Getty Images
Arsenal vann í dag nauman sigur á Sunderland, 3-2. Það var Robin van Persie sem skoraði sigurmark leiksins undir lokin en Sunderland hafði þá jafnað metin eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Leikmenn Arsenal byrjuðu leikinn af miklum krafti. Það var einmitt van Persie sem skoraði fyrsta mark leiksins strax á sjöttu mínútu, beint úr aukaspyrnu. Um var að ræða bylmingsskot sem fór í slána og inn. Glæsilegt mark. Aðeins nokkrum mínútum síðar bætir Philippe Senderos við marki sem kemur eftir fyrirgjöf Emmanuel Adebayor og klafs í teignum. Flest lið hefðu vafalaust einfaldlega gefist upp eftir að hafa lent tveimur mörkum undir á fyrsta stundarfjórðungnum á heimavelli Arsenal. Svo var þó ekki. Á 25. mínútu bjargar Manuel Almunia laglega frá Kenwyne Jones en Ross Wallace fylgir vel á eftir og kemur boltanum í netið. Þannig var staðan í hálfleik. Það var svo strax á 48. mínútu að jöfnunarmarkið kom. Í þetta sinn brást Jones ekki bogalistin og skoraði með góðum skalla eftir fyrirgjöf Liam Miller. En þá var eins og leikmenn Arsenal hafi vaknað af værum draumi og byrjuðu að sækja á ný. Kolo Toure átti þrumufleyg í samskeytin en van Persie kórónaði frábæran leik með því að skora sigurmarkið. Það kom á 80. mínútu eftir frábæran undirbúning Theo Walcott. Undir lokin fékk Paul McShane, fyrirliði Sunderland, beint rautt spjald fyrir að brjóta heldur klunnalega á Alex Hleb. Kannski full harkalegur dómur en tæklingin var einfaldlega afar klunnaleg. Í blálokin átti svo Walcott glæsilegt skot sem hafnaði í stöng Sunderland-marksins. En þar við sat og úrslitin klár. Arsenal skaust aftur á topp ensku úrvalsdeildarinnar en liðið er með 22 stig eftir átta leiki. Það er nokkuð ljóst að ef Liverpool og Manchester City vinna ekki sína leiki í dag eru Arsenal og Manchester United á góðri leið með að stinga af í deildinni.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Fram - Valur | Sögulegur fallslagur fyrir Val Íslenski boltinn Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Víkingur - Þór/KA | Bæði lið í lífsbaráttu Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Fleiri fréttir Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Sjá meira