Mourinho: Áttum ekki skilið að vinna 22. apríl 2007 16:18 Jose Mourinho er ekki ánægður með dómara í ensku úrvalsdeildinni. MYND/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, viðurkenndi eftir markalausa jafnteflið gegn Newcastle í dag að sínir menn hefðu ekki átt skilið að fara frá St. James´Park með þrjú stig í farteskinu. Mourinho var hins vegar mjög óánægður með dómara leiksins og sagði augljósri vítaspyrnu hafa verið sleppt. "Ef þú spyrð mig hvort að Chelsea hafi átt skilið að vinna þennan leik, þá segi ég nei. Leikmenn Newcastle voru ferskari en við og hættulegri í skyndisóknunum. Þeir áttu skilið að fá annað stigið," sagði Mourinho. Þrátt fyrir að vera ennþá þremur stigum á eftir Man. Utd. segist Jose Mourinho mjög sáttur með stöðu mála. Liðið á fjóra leiki eftir í deildinni og eru þrír þeirra á Stamford Bridge, m.a. leikurinn mikilvægi gegn Man. Utd.. "Síðustu vikur hefur markmið okkar fyrir þennan tímapunkt að eiga ennþá góða möguleika á titlinum. Sá möguleiki er til staðar. Ef einhver hefði boðið mér þessa stöðu fyrir 10 vikum síðan hefði ég þáð hana." Mourinho lét hins vegar einnig í ljós óánægju sína með muninn á dómgæslu í leikjum Man. Utd. og Chelsea. Mourinho vildi meina að tveimur augljósum vítaspyrnum hefði verið sleppt í leiknum í dag og vísaði í samanburði til atviks sem átti sér stað í leik Man. Utd. og Middlesbrough í gær þegar John O´Shea felldi Lee Dong-Gook innan teigs, en ekkert var dæmt. "Þetta virðist vera regla hjá dómurum; að dæma ekki vítaspyrnur á Man. Utd. og ekki leyfa Chelsea að fá vítaspyrnur. Þetta eru stórar ákvarðanir dómara, sem hafa áhrif á stig liðanna," sagði Mourinho þungur á brún.
Enski boltinn Mest lesið EM í dag: Fullkominn leikur fyrir Gumma Gumm Handbolti Ótrúleg sigurganga Luke Littler tók loks enda Sport Skýrsla Henrys: Sláturtíð í Kristianstad Handbolti „Ég er bara aumur aðstoðarþjálfari“ Sport Vikor Gísli rændur á tölfræðiblaðinu Handbolti Sjáðu gleðina hjá Íslendingum í Kristianstad Handbolti Færeyingar fengu stig með hádramatískum hætti Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ítalíu: Her Napóleons gjörsigraður Handbolti Ungverjar ekki í vandræðum með Pólverja Handbolti „Höllin var æðisleg“ Handbolti Fleiri fréttir Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Mætir Liverpool en fær gæsahúð þegar hann heyrir „You'll Never Walk Alone“ Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Sjá meira