Enski boltinn

Wenger hefur trú á sínum mönnum

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Wenger segir að sitt lið verði í toppbaráttunni.
Wenger segir að sitt lið verði í toppbaráttunni. Mynd/ Getty Images
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er sannfærður um að lið hans hafi það sem þurfi til að berjast um efsta sætið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst á morgun. „Við búum yfir miklum innri styrk. Ég hef það á tilfinningunni að við munum gera góða hluti, sama hvað aðrir segja," sagði Wenger.

Margir búast við því að Arsenal muni eiga í erfiðleikum á komandi tímabili, sérstaklega eftir að liðið seldi Thierry Henry til Barcelona í sumar. Wenger viðurkennir að það verði ekki auðvelt að fylla upp í skarðið sem Henry skildi eftir sig.

„Hann skoraði fleiri mörk fyrir Arsenal heldur en nokkur annar hefur gert í sögu félagsins þannig að við munum sakna hans, en við munum yfirstíga það. Við ætlum að berjast við Manchester United og Chelsea og erum ekki hræddir við það."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×