Enski boltinn

Heiðar gæti spilað á laugardag

Andri Ólafsson skrifar
Heiðar er kominn til Bolton.
Heiðar er kominn til Bolton. NordicPhotos/GettyImages

Heiðar Helguson, sem í sumar gekk til liðs við Bolton, gæti leikið með sínum nýju félögum á laugardag þegar liðið tekur á móti Newcastle. Heiðar er óðum að jafna sig á smávægilegum meislum sem hann hlaut í æfingaleik gegn Colchester.

Leikurinn við Newcastle er athyglisverður í meira lagi þar sem Sam Allardyce, sem til margra ára réð ríkjum hjá Bolton, stýrir nú liði Newcastle. Ekki bætir úr skák að pillurnar hafa flogið fjölmiðlum á milli Allardyce og hans gömlu yfrmanna hjá Bolton undanfarið. Loftið verður því að öllum líkindum lævi blandið þegar Heiðar þreytir frumraun sína á Reebok Stadium.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×