Erlent

Barack segist ekki móðgaður

Barack Obama Bush sagður hafa ruglast á honum og Osama.
Barack Obama Bush sagður hafa ruglast á honum og Osama. MYND/AP

„Ég varð nú ekkert mikið móðgaður út af þessum brandara,“ sagði Barack Obama, öldungadeildarþingmaður og hugsanlegur forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum. „Ég hef verið nefndur verri nöfnum.“

Roger Ails, yfirmaður fréttastöðvarinnar Fox, hafði gert sér mat úr því hve nafnið Obama er líkt nafni Al Kaída-leiðtogans Osama bin Laden. Á fundi bandarískra fréttastjóra sagði Ails að nú væri „Barack Obama á ferðinni. En ég veit ekki hvort það er satt að Bush forseti hafi hringt í Musharraf [forseta Pakistans] og sagt: „Hvers vegna getum við ekki haft uppi á þessum náunga?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×