Erlent

Íslendingum haldið góðum

Finnska dagblaðið Hufvudstadsbladet fjallaði um málefni finnska flugfélagsins Finnair í leiðara í gær og sagði að meirihlutaeign finnska ríkisins í Finnair sé hagsmunamál finnsku þjóðarinnar. Hins vegar skipti miklu máli að halda Íslendingunum góðum. „Af hverju að neita þeim um sæti í stjórninni?“

Björn Månsson, leiðarahöfundur Hufvudstadsbladet, segir: „Annað mál er hversu skynsamleg eigendapólitík það er að halda íslensku minnihlutaeigendunum utan stjórnarinnar þó að þeir hafi fært stóran hluta af eignarhaldi sínu á milliliði og eigi því ekki endilega lagalega kröfu á sæti í stjórninni.

Væntanlega er mikilvægt að áhugi íslensku fjárfestanna haldist vinsamlegur.“-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×