Erlent

Ætlar ekki að bjóða sig fram

Jacques Chirac
Jacques Chirac
Jacques Chirac Frakklandsforseti ætlar ekki að bjóða sig fram í forsetakosningunum sem haldnar verða eftir hálfan annan mánuð.

Chirac hefur verið forseti Frakklands í tvö kjörtímabil, samtals í tólf ár. Hann er orðinn 74 ára en hefur verið þögull um áform sín þangað til í gær að hann tilkynnti ákvörðun sína í sjónvarpsávarpi. „Ég ætla ekki að biðja um atkvæði ykkar fyrir þriðja kjörtímabilið,“ sagði hann.

Samkvæmt skoðanakönnunum er Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra sigurstranglegastur í kosningunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×