Íslenski boltinn

Keflavík tapaði í Danmörku og er fallið úr leik

Aron Örn Þórarinsson skrifar

Keflavík tapaði fyrir FC Midtjylland í dag 2-1 í seinni leik liðanna í undankeppni Evrópukeppni félagsliða. Keflavík vann fyrri leikinn á heimavelli 3-2 og staðan því samanlagt 4-4 eftir leikina tvo. Keflavík er þar með dottið úr leik því að FC Midtjylland skoraði fleiri mörk á útivelli.

Baldur Sigurðsson kom Keflvíkingum yfir á 24. mínútu en Poulsen og Dadu skoruðu fyrir FC Midtjylland í seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×