Enski boltinn

Brynjar Björn: Menn vissu upp á sig sökina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Björn í landsleik Íslands og Lettlands á Laugardalsvelli um síðustu helgi.
Brynjar Björn í landsleik Íslands og Lettlands á Laugardalsvelli um síðustu helgi. Mynd/Daníel

Brynjar Björn Gunnarsson segir á bloggi sínu í dag að menn vissu vel upp á sig sökina eftir tapið í Liechtenstein.

„Stemningin í klefanum eftir leik var auðvitað döpur. Menn vissu alveg upp á sig sökina og verðum við bara að reyna að bæta okkur í framtíðinni. Það er lítið meira hægt að segja um þetta. Við ákváðum áður en við fórum að tala ekkert meira um þennan leik og einbeita okkur frekar að því sem er framundan," skrifar Brynjar Björn.

Lið hans, Reading, mætir Blackburn í ensku úrvalsdeildinni um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×