Enski boltinn

Tottenham býður í Riquelme

Á leið í enska boltann?
Á leið í enska boltann?

Umboðsmaður argentínska miðjumannsins Juan Roman Riquelme segir að Tottenham hafi komið með tilboð í leikmanninn. Spænska liðið Villareal er tilbúið að selja Riquelme en leikmaðurinn eyddi seinni helmingi síðasta tímabils á lánssamningi hjá Boca Juniors í heimalandinu.

Mörg félög í Evrópu hafa sýnt Riquelme áhuga en fréttir herma að tilboð Tottenham hljóði upp á tíu milljónir punda. Talsmaður leikmannsins segir hann mjög áhugasaman um að spila í enska boltanum.

Villareal þarf að vera búið að taka ákvörðun um framtíð Riquelme í þessum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×