Erlent

Eiturlyfjasalar sagðir koma í veg fyrir samninga um Kristjaníu

Eiturlyfjasalar í Kristjaníu eru sagðir standa í vegi fyrir því að íbúar fríríkisins samþykki tillögur yfirvalda um breytingar á stöðu Kristjaníu. Samkvæmt þeim er meðal annars gert ráð fyrir að nokkurs konar íbúðasamtök taki við stórum hluta af íbúðunum í fríríkinu og að sérstakur sjóður sjái um leigja íbúðirnar út til íbúa og reka þær.

Ritzau-fréttastofan hefur eftir talskonu Kristjaníubúa að meirihluti íbúa vilji samþykkja tillögurnar en eiturlyfjasalar hafi hins vegar með hótunum komið í veg fyrir að þær verði samþykktar. Kristjaníubúar funduðu í gær til þess að reyna að ná niðurstöðu í málinu en eftir fimm tíma fund var ákveðið að efna til annars fundar á sunnudag. Íbúar í Kristjaníu hafa frest til næstu mánaðamóta til að svara tilboði yfirvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×