Erlent

Evrópusambandið fimmtugt

Í dag hófust formlega hátíðahöld í tilefni að því að á sunnudaginn eru liðin 50 ár frá undirritun Rómarsáttmálans og stofnun Efnahagsbandalags Evrópu, forvera Evrópusambandsins. Romano Prodi forsætisráðherra Ítalíu og Jose Manuel Barroso forseti Evrópusambandsins ávörpuðu ítalska þingið í morgun og mörkuðu þar með upphaf hátíðahalda sem standa munu um helgina.

Aðalhátíðahöldin verða í Berlín, höfuðborg Þýskalands, en Þjóðverjar fara með forsæti í sambandinu um þessar mundir. Þar munu leiðtogar sambandsins skrifa undir sameiginlega yfirlýsingu sem á að minnast afreka sambandsins og setja markmið fyrir framtíðina. Fimmtugt skartar Evrópusambandið 27 aðildarþjóðum, sameiginlegri mynt, friðargæsluliði í Afríku, Asíu, Miðausturlöndum og á Balkanskaga, 20 prósentum af verslun heimsins og 490 milljón íbúum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×