Erlent

Mótmæltu klæðskiptingi í Eurovision

Fjöldi fólks kom saman í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu í gær til að mótmæla framlagi landsins í Eurovision-söngvakeppnina. Það er klæðskiptingurinn Verka Serdyuchka sem vann forkeppnina í landinu og stígur á svið í Helsinki þann 12. maí næstkomandi. Mótmælendur brenndu myndir af Verku og hrópuðu niðrandi hróp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×