Erlent

Gates vildi loka Guantanamo

Robert Gates
Robert Gates Getty Images

Robert Gates varnarmálaráðherra Bandaríkjanna vildi láta loka fangelsinu í Guantanamo á Kúbu. Hann færði fyrir því rök þegar hann tók fyrst við embætti af Donald Rumsfeldt í desember, að alþjóðasamfélagið mundi líta hornauga á hver þau réttarhöld sem þar mundu fara fram.

Varaforsetinn Dick Cheney og Alberto Gonzales dómsmálaráðherra mótmæltu þessum fyrirætlunum Gates og málið var til lykta leitt þegar Bush forseti snerist á sveif með Cheney og Gonzales. Condoleeza Rice utanríkisráðherra hafði tekið undir með Gates um að loka ætti fangelsinu. Þetta kom fram í New York Times í gær en blaðið hefur þetta eftir skýrslu sem það hefur undir höndum og embættismönnum sem ekki vilja láta nafns síns getið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×