Erlent

Viðræður geta hafist aftur fljótlega

AP

Samningaviðræður um kjarnorkumál Norður-Kóreu geta hafist fljótt aftur. Þetta segir Chris Hill aðalsamningamaður Bandaríkjastjórnar. Hann staðhæfði í morgun að viðræðurnar gætu haldið áfram um leið og Norður-Kóreumenn hafa fengið í hendur 25 milljónir dollara sem Bandaríkjamenn frystu á bankareikningi þeirra í Macau. Stjórnvöld í Pyongyang hafa neitað að framhalda viðræðum þar til peningarnir haf borist þeim. Búist er við að ef allt gengur að óskum geti áætlanir um afvopnun, sem samið var um í byrjun síðasta mánaðar, staðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×