Erlent

Áfengi hættulegra en kannabis

Heróín er eftir sem áður talið eitt skaðlegasta fíkniefnið
Heróín er eftir sem áður talið eitt skaðlegasta fíkniefnið Getty Images

Áfengi og tóbak eru hættulegri fíkniefni en kannabis, LSD eða E-töflur. Þetta er niðurstaða sérfræðingarannsóknar í Bretlandi.

Sumir helstu lyfjasérfræðingar Bretlands hafa lagt mat á skaðsemi fíkniefna út frá þeim félagslega skaða sem þau valda og dæma áfengi og tóbak sem hættulegri fíkniefni en kannabis, LSD eða E-töflur. Skýrsla þessa efnis var birt í læknatímaritinu Lancet.

Aðalhöfundur skýrslunnar segir að fíkniefni hafi aldrei verið ódýrari, aðgengilegri eða meira notuð. Hann segir að stefna stjórnvalda síðustu áratugi ekki hafa virkað til þess að draga úr fíkniefnanotkun. Í rannsókninni voru 29 sálfræðingar sem sérhæfa sig í meðferð við fíkniefnamisnotkun beðnir um að flokka fíkniefni eftir skaðsemi þeirra.

Niðurstöðurnar voru að heróín og kókaín væru skaðlegustu efnin, áfengi lenti í fimmta sæti og tóbak í því níunda, sæti á eftir amfetamíni. Kannabis var svo í ellefta sæti, LSD í fjórtánda og E-töflur í átjánda. Þá kom einnig fram í skýrslunni að áfengi og tóbak eru þau fíkniefni sem valda langflestum dauðsföllum árlega í Bretlandi. Þar deyr einn á dag úr áfengiseitrun og mörg þúsund á ári hverju til viðbótar vegna ofneyslu.

Sérfræðingarnir krefjast þess að ríkisstjórnin hætti að afvegaleiða almenning með villandi skilaboðum um skaðsemi hinna ýmsu fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×