Erlent

Vatnsgæði lök í ríkjum Evrópu

stavros dimas gagnrýnir Evrópuríki fyrir að framfylgja ekki reglum um hreint vatn.
stavros dimas gagnrýnir Evrópuríki fyrir að framfylgja ekki reglum um hreint vatn. MYND/AFP

Vatnsgæði í Evrópuríkjum eru enn lök þrátt fyrir nýlegar reglur sem eiga að tryggja hreint vatn í ám, vötnum, grunnvatni og sjó.

Þetta segir Stavros Dimas, sem fer með umhverfismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Dimas segir hreinsun vatnsfarvega og aðgang að hreinu grunnvatni í Evrópu lífsnauðsynleg til að sporna við loftslagsbreytingum sem hafa aukið hættu á flóðum og þurrkum í álfunni.

Samkvæmt reglunum, sem settar voru fyrir sjö árum, geta ríki sem uppfylla ekki staðla um hreint vatn árið 2015 átt yfir höfði sér málsókn.

Alþjóðlegur dagur vatnsins var haldinn í gær og var af því tilefni vakin athygli á fjölmörgum vám sem steðja að hreinleika vatns á jörðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×