Erlent

Danir hýsa nýja SÞ-ráðstefnu

Anders Fogh Rasmussen boðar loftslagsráðstefnu í Kaupmannahöfn.
Anders Fogh Rasmussen boðar loftslagsráðstefnu í Kaupmannahöfn. MYND/Getty

Dönsk stjórnvöld hyggjast árið 2009 verða gestgjafar nýrrar ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, sem koma á í staðinn fyrir Kyoto-sáttmálann títtnefnda.

Markmiðið er að Bandaríkin – sem höfnuðu Kyoto-sáttmálanum – og fleiri lönd sem skila miklum mengandi útblæstri út í andrúmsloftið eins og Kína og Indland verði einnig aðilar að nýja sáttmálanum. Frá þessu greindi danski forsætisráðherrann Anders Fogh Rasmussen á blaðamannafundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×