Erlent

Chirac styður Nicolas Sarkozy

Jacques Chirac Frakklandsforseti hefur lýst yfir stuðningi við Nicolas Sark-ozy, forsetaframbjóðanda Gaullistaflokksins, UMP.

Chirac sagði það vera „eðlilegt að ég býð honum atkvæði mitt og stuðning“. Alllengi hefur verið grunnt á því góða milli þeirra flokksbræðranna. Mánuður er í fyrstu umferð kosninganna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×