Enski boltinn

Barton gæti átt von á allt að fimm ára fangelsi

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Það verða kannski ekki miklar breytingar á klæðnaði Barton verði hann dæmdur til fangelsisvistar.
Það verða kannski ekki miklar breytingar á klæðnaði Barton verði hann dæmdur til fangelsisvistar. NordicPhotos/GettyImages

Joey Barton, miðjumaður Newcastle, lýsti sig saklausan í réttarsal í dag, en hann er ákærður fyrir að berja Ousmane Dabo, fyrrverandi liðsfélaga sinn hjá Manchester City á æfingu. Barton var kærður fyrir líkamsárás og gæti átt allt að fimm ára fangelsi yfir höfði sér. Atvikið átti sér stað þann 1. maí síðasliðinn og var Barton sektaður af félaginu og að lokum seldur til Newcastle.

Barton mætti í réttarsalinn á hækjum og sagði aðeins nafn sitt og að hann væri saklaus. Saksóknari sagði árásina vera grimmdarlega. Barton á að mæta aftur fyrir rétt þann 4. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×