Enski boltinn

Einn besti leikurinn undir minni stjórn

Harry Redknapp var að springa úr stolti yfir spilamennsku sinna manna í Portsmouth gegn Bolton.
Harry Redknapp var að springa úr stolti yfir spilamennsku sinna manna í Portsmouth gegn Bolton. Nordic Photos/Getty

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, var himinlifandi með leik sinna manna í sigurleiknum gegn Bolton í dag og sagði leikinn einn þann besta sem liðið hefði spilað undir hans stjórn.

"Þetta var frábær sigur fyrir okkur. Ég held bara að þetta sé einn besti leikur sem liðið hefur spilað undir minni stjórn. Margir leikmanna liðsins spiluðu í stöðum sem þeir hafa aldrei spilað áður og stóðu sig eins og hetjur," sagði Redknapp eftir leikinn við Sky sjónvarpsstöðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×