Enski boltinn

Vill að Ronaldo fái meiri vernd

Alex Ferguson má ekki við því að missa stjörnuleikmann sinn í alvarleg meiðsli.
Alex Ferguson má ekki við því að missa stjörnuleikmann sinn í alvarleg meiðsli. MYND/Getty

Fótbolti Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, vill að dómarar í ensku úrvalsdeildinni veiti Cristiano Ronaldo meiri vernd í návígjum. Ferguson vill meina að Ronaldo sé ávallt í umtalsverðri hættu á að hljóta alvarleg meiðsl.

„Mér finnst dómarar hafa slakað á hörkunni þegar kemur að of seinum tæklingum. Ég hélt að það stæði svart á hvítu að þær væru ekki leyfðar en mér finnst ekki vera refsað fyrir þær um þessar mundir,“ sagði Ferguson og átti við fyrstu tvo leiki Man. Utd. í úrvalsdeildinni, en í báðum þeirra hefur liðið aðeins hlotið eitt stig.

„Leikmenn þurfa meiri vernd. Svona tæklingar eru stórhættulegar og það eru einmitt leikmenn eins og Ronaldo sem eru líklegustu fórnarlömbin. Þetta á eftir að enda með því að leikmenn stórslasast,“ sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×