Erlent

Aukin nýting endurnýjanlegrar orku

Angela Merkel, kanslari þýskalands, og jose manuel barroso, forseti evrópusambandsins Þýskaland situr nú í forsæti Evrópusambandsins.
Angela Merkel, kanslari þýskalands, og jose manuel barroso, forseti evrópusambandsins Þýskaland situr nú í forsæti Evrópusambandsins. MYND/AFP

Leiðtogaráð Evrópusambandsins samþykkti djörf markmið til að draga úr gróðurhúsa-áhrifum á fundi sínum í gær.

Samkvæmt markmiðunum skuldbinda ríki sambandsins sig til þess að árið 2020 muni fimmtungur þeirrar orku sem ríkin nota koma frá endurnýjanlegum orkugjöfum á borð við sól- og vindorku. Er um mikla aukningu að ræða en í dag koma um sex prósent orkunnar frá endurnýjanlegum orkugjöfum.

Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, skoraði á aðrar þjóðir að fylgja fordæmi ESB og sagði að heimurinn hefði enn tíma til að „afstýra því sem vel gæti orðið hörmungar mannkyns.“

Samkvæmt áætluninni á útblástur gróðurhúsalofttegunda innan ríkja ESB að hafa dregist saman um 20 prósent á tímabilinu 1990 til 2020.

Merkel hyggst kynna áætlun á fundi iðnvæddustu þjóða heims í júní, G8-hópsins svonefnda, og vonast leiðtogaráðið til að hún geti haft áhrif á ríki á borð við Bandaríkin og Kína sem menga mest allra þjóða heims.

Í áætluninni er umdeild klásúla þar sem kjarnorka er einnig nefnd sem vænlegur orkugjafi. Var hún sett inn að kröfu Frakklands, Tékklands, Slóvaíku og fleiri landa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×