Erlent

Þing samþykkir fóstureyðingar

Andstæðar fylkingar tókust á í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Andstæðar fylkingar tókust á í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. AFP

Portúgalska þingið samþykkti í gær frumvarp um að leyfa fóstureyðingar fram á tíundu viku meðgöngu.

Portúgölum gafst kostur á að kjósa um þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu 11. febrúar en kjörsókn var of lág til að hún teldist gild. Af þeim sem kusu voru tæp 60 prósent fylgjandi slíkum lögum.

Portúgal hefur verið eitt fjögurra landa Evrópusambandsins þar sem lög um fóstureyðingar eru hvað ströngust.

Forseti þarf að staðfesta frumvarpið sem verður ekki að lögum fyrr en það verður kunngjört sem getur tekið nokkra mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×