Erlent

Leyst upp af stjórnvöldum

Lögregla leysti upp mótmæli í Nizhny Novgorod, fjórðu stærstu borg Rússlands, í gær. Skipuleggjendur mótmælanna segja lögreglu hafa hundruð mótmælenda í haldi, þar á meðal tugi innlendra og erlendra blaðamanna.

Mótmælendur létu í ljós óánægju sína með stefnu stjórnvalda á svæðinu í umhverfis- og húsnæðismálum, en gagnrýndu jafnframt stjórnvöld í Moskvu fyrir að hamla málfrelsi. Þetta voru þriðju mótmælin af þessu tagi á síðustu mánuðum. Fyrr í mánuðinum leysti lögregla upp mótmæli í St. Pétursborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×