Erlent

Sótti rangt barn á leikskóla

Lögregla í Króatíu leitaði logandi ljósi að nærsýnum króatískum ellilífeyrisþega í vikunni eftir að maðurinn sótti óvart rangt barn á leikskóla og hafði það á brott með sér.

Hinn sjötugi Luka Karlovic ætlaði að sækja Petar, fimm ára sonarson sinn, en þegar kallað var á Petar kom annar drengur fram, sem einnig hét Petar, og Karlovic ók með hann á brott. Mistökin uppgötvuðust hálftíma síðar, þegar faðir drengsins kom að sækja hann.

„Ég er farinn að sjá illa og hafði ekki séð Petar í hálft ár,“ sagði Karlovic. „Mér fannst hann hafa breyst, en hvaða börn gera það ekki?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×