Erlent

Bílarnir víkja fyrir fiðrildum

Hluti hraðbrautar í Taívan verður girtur af á næstu dögum til að rýma fyrir flökkufiðrildum sem fljúga frá syðri hluta landsins til þess nyrðri í lok mars ár hvert.

Fiðrildategundin, sem hefur einkennandi hvíta depla á purpurabrúnum vængjunum, lifir aðeins á Taívan og talið er að stofninn telji einungis tvær milljónir fiðrilda.

Yfirvöld munu einnig setja upp net á hraðbrautinni til að fá fiðrildin til að fljúga hærra og forðast bílana á brautinni. Einnig verða sett upp útfjólublá flóðljós til að leiðbeina þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×