Erlent

Enn í haldi mannræningja

Aldraði Svíinn, sem rænt var í Kólumbíu í síðustu viku, er enn í haldi mannræningjanna en kólumbísk sambýliskona hans er laus úr haldi.

Henni tókst að flýja þegar átök brutust út milli mannræningjanna og lögreglu, að sögn vefútgáfu Dagens Nyheter.

Tveir mannræningjar létust í átökunum.

Lögregla og her leita nú að Svíanum, meðal annars með aðstoð þyrlusveita, og beinist leitin einkum að fjallasvæðinu Tierralta norðan við höfuðborgina Bogotá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×