Erlent

Dauðir smáhvalir í Berlín

Hvalir við Brandenborgarhliðið.
Mótmælendur vildu sýna hve illa væri farið með hvali.
Hvalir við Brandenborgarhliðið. Mótmælendur vildu sýna hve illa væri farið með hvali. MYND/AP

Dýraverndarsamtökin Greenpeace stóðu í gær fyrir mótmælum gegn hvalveiðum í Berlín. Sautján dauðir smáhvalir voru lagðir til sýnis á götuna rétt við Brandenborgarhliðið, sem í eina tíð stóð á mörkum Vestur- og Austur-Berlínar.

Mótmælendurnir sögðu suma hvalina hafa drepist í netum fiskveiðiskipa, en aðrir hefðu lent í skipsskrúfum og voru þeir með ljót sár á skrokknum.

Alþjóðahvalveiðinefndin kemur saman í Alaska í næstu viku og er reiknað með að Japanar fari þar fram á að bann við hvalveiðum verði afnumið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×