Erlent

Mikil flóð víða um Búlgaríu

Úrhellisrigning undanfarna þrjá daga hefur valdið gífurlegum flóðum víða um Búlgaríu. Engar fréttir hafa borist af meiðslum.

Ástandið hefur verið einna verst í höfuðborg landsins, Sofiu, og í nálægum þorpum að sögn yfirvalda.

Flætt hefur inn á tugi heimila eftir að ár hafa flætt yfir bakka sína. Nokkrir vegir eru ófærir sem hefur leitt til mikilla umferðartafa. Einhver þorp hafa einangrast eftir að brýr og vegir hafa eyðilagst í flóðum og aurskriðum.

Veðurfræðingar spá áframhaldandi rigningum næstu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×