Erlent

Big Mac dýrastur hérlendis

Big mac borgari Fæst í 120 löndum heimsins.
Big mac borgari Fæst í 120 löndum heimsins. MYND/AFP

Íslenska krónan er ofmetnasta myntin samkvæmt Big Mac vísitölu breska tímaritsins The Economist. Big Mac hamborgari kostar 123 prósent meira á Íslandi en í Bandaríkjunum.

Big Mac vísitalan er yfirlit tímaritsins yfir verð Big Mac hamborgara á McDonalds skyndibitastöðum í 120 löndum.

Noregur og Sviss fylgja fast á hæla Íslands og í löndum sem nota Evruna kostar Big Mac 22 prósent meira en í Bandaríkjunum. Japanska jenið er, eitt gjaldmiðla ríkari landa heimsins, vanmetið um þriðjung. Big Mac í Kína kostar hins vegar 58 prósent minna en í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×