Erlent

63 myrtir í Tal Afar í Írak í nótt

Byssumenn réðust inn í hverfi súnnía í borginni Tal Afar í Írak í nótt og myrtu 63. Líklegt er talið að verið sé að hefna fyrir bílsprengjuárás á svæði sjíta í gær. Í Tal Afar búa sjítar, súnníar og Túrkmenar en borgin er nærri landamærum Sýrlands. Tugir til viðbótar særðust í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×