Erlent

Harðari afstaða Breta í garð Írana

Herskipið hMS CORNWALL. Hermennirnir fimmtán sem eru í haldi Írana voru í áhöfn breska herskipsins HMS Cornwall.
Herskipið hMS CORNWALL. Hermennirnir fimmtán sem eru í haldi Írana voru í áhöfn breska herskipsins HMS Cornwall. MYND/AP

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist í gær vonast til að hægt yrði að fá írönsk stjórnvöld til að láta hermennina bresku lausa með viðræðum en að hann sé tilbúinn til að fara yfir á „annað stig“ beri viðræður ekki árangur.

Aðspurður um hvað hann meinti með þeim orðum sagði Blair: „Ja, við þurfum bara að sjá til, en það sem þeir ættu að gera sér grein fyrir er að við getum ekki haft ástand þar sem okkar fólk, karlar og konur sem sinna herþjónustu, er handtekið þegar það er í raun inni í íraskri lögsögu í umboði Sameinuðu þjóðanna.“

Írönsk stjórnvöld greindu frá því í gær að bresku hermennirnir fimmtán, átta sjóliðar og sjö landgönguliðar sem handteknir voru á föstudag, hefðu fengið „mannúðlega meðferð“ og að eina kvenfanganum hefði verið veitt persónulegt næði. Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, Mohammad Ali Hosseini, neitaði að gefa upp hvar þeir væru í haldi og ítrekaði að mál þeirra væri enn í rannsókn. „Málið á að fylgja réttu ferli,“ sagði Hosseini og bætti við að öfgakennd fjölmiðlaumfjöllun myndi ekki flýta úrlausn.

Þetta atvik, ásamt spennu vegna kjarnorkuáætlunar Írans, varð til þess að olíuverð hækkaði í New York á mánudag. En olíuverð féll á ný í gær sem endurspeglar bjartsýni um að friðsamleg lausn finnist í máli bresku hermannanna.

Hermennirnir voru handteknir þegar þeir voru í eftirlitsferð um borð í indversku skipi í nágrenni Shatt al-Arab fljótsins. Að sögn Kevins Aandahl, yfirmanns fimmtu flotadeildar bandaríska sjóhersins, hefur skipstjóri skipsins gefið skýrslu um að skipið hafi verið statt í íraskri lögsögu. Íranar halda því fram að þetta hafi farið fram í íranskri lögsögu.

Flotaher Bandaríkjanna hóf í gær stærstu sýningu á herstyrk sínum á Persaflóa frá innrásinni í Írak árið 2003. Tvö flugmóðurskip, þrettán herskip og yfir hundrað flugvélar tóku þátt í heræfingunni. Talið er víst að þetta muni auka á spennu gagnvart írönskum stjórnvöldum sem hafa ítrekað fordæmt veru Bandaríkjahers við strendur landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×