Harðari afstaða Breta í garð Írana 28. mars 2007 00:00 Herskipið hMS CORNWALL. Hermennirnir fimmtán sem eru í haldi Írana voru í áhöfn breska herskipsins HMS Cornwall. MYND/AP
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist í gær vonast til að hægt yrði að fá írönsk stjórnvöld til að láta hermennina bresku lausa með viðræðum en að hann sé tilbúinn til að fara yfir á „annað stig“ beri viðræður ekki árangur. Aðspurður um hvað hann meinti með þeim orðum sagði Blair: „Ja, við þurfum bara að sjá til, en það sem þeir ættu að gera sér grein fyrir er að við getum ekki haft ástand þar sem okkar fólk, karlar og konur sem sinna herþjónustu, er handtekið þegar það er í raun inni í íraskri lögsögu í umboði Sameinuðu þjóðanna.“ Írönsk stjórnvöld greindu frá því í gær að bresku hermennirnir fimmtán, átta sjóliðar og sjö landgönguliðar sem handteknir voru á föstudag, hefðu fengið „mannúðlega meðferð“ og að eina kvenfanganum hefði verið veitt persónulegt næði. Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, Mohammad Ali Hosseini, neitaði að gefa upp hvar þeir væru í haldi og ítrekaði að mál þeirra væri enn í rannsókn. „Málið á að fylgja réttu ferli,“ sagði Hosseini og bætti við að öfgakennd fjölmiðlaumfjöllun myndi ekki flýta úrlausn. Þetta atvik, ásamt spennu vegna kjarnorkuáætlunar Írans, varð til þess að olíuverð hækkaði í New York á mánudag. En olíuverð féll á ný í gær sem endurspeglar bjartsýni um að friðsamleg lausn finnist í máli bresku hermannanna. Hermennirnir voru handteknir þegar þeir voru í eftirlitsferð um borð í indversku skipi í nágrenni Shatt al-Arab fljótsins. Að sögn Kevins Aandahl, yfirmanns fimmtu flotadeildar bandaríska sjóhersins, hefur skipstjóri skipsins gefið skýrslu um að skipið hafi verið statt í íraskri lögsögu. Íranar halda því fram að þetta hafi farið fram í íranskri lögsögu. Flotaher Bandaríkjanna hóf í gær stærstu sýningu á herstyrk sínum á Persaflóa frá innrásinni í Írak árið 2003. Tvö flugmóðurskip, þrettán herskip og yfir hundrað flugvélar tóku þátt í heræfingunni. Talið er víst að þetta muni auka á spennu gagnvart írönskum stjórnvöldum sem hafa ítrekað fordæmt veru Bandaríkjahers við strendur landsins.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Erlent Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Erlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira