Fátæktin aldrei verið meiri 3. september 2007 01:15 Móðir í Hebron fylgdi börnum sínum í skólann á laugardaginn, fyrsta skóladag vetrarins. Ísraelskur hermaður fylgist með mannaferðum. MYND/AP
Fátækt meðal Palestínumanna er nú meiri en nokkru sinni. Rúmlega helmingur allra heimila á svæðum Palestínumanna telst nú vera undir fátæktarmörkum, það er að segja 25 þúsund krónum á mánuði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um efnahagsástandið í Palestínu, sem UNCTAD, Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun, sendi frá sér í lok síðustu viku. Að meðaltali eru um sex manns í heimili í Palestínu. Í skýrslunni segir að margar fjölskyldur þurrausi alla sína varasjóði og sjái nú engar leiðir sér til framfærslu. Meira en ein milljón manna býr við mikla fátækt. Atvinnuleysi er um þrjátíu prósent, þjóðartekjur á mann drógust saman um fimmtán prósent á síðasta ári og heildarþjóðarframleiðsla dróst saman um 6,6 prósent. Í skýrslunni segir að meginástæðan fyrir þessu alvarlega ástandi sé sú stefna Ísraela að einangra efnahagslíf Palestínu frá heimsmarkaðnum. Nú sé mikilvægt að efla möguleika Palestínumanna til að stunda viðskipti, frekar en að einblína sífellt á öryggismálin. Þrátt fyrir erfitt pólitískt ástand sé ekki síst mikilvægt að opna verslunarleið milli Vesturbakkans og Gaza-strandar.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Innlent Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Innlent Fleiri fréttir Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Sjá meira