Varað við tíðari hitabylgjum og illviðrum í heiminum 8. ágúst 2007 08:07 Íbúar Bangladess hafa margir hverjir orðið illa úti í miklum monsúnrigningum undanfarna daga. MYND/AP
Veðurfarsstofnun Sameinuðu þjóðanna varar við því að illviðri og hitabylgjur verði tíðari á næstu árum í nýrri skýrslu um veðurfar í heiminum. Þar er bent á að fyrri hluti þessa árs hafi einkennst af bæði illviðrum og miklum hitum víða í heiminum og að meðaltalshitinn í heiminum frá janúar til apríl hafi ekki reynst meiri frá því að mælingar hófust árið 1880. Þá er bent á að ellefu af síðustu tólf árum séu með þeim tólf heitustu sem mælst hafi á þessu tæplega 130 ára tímabili. Enn fremur sýna loftlagsrannsóknir að hitinn hafi aukist meira síðustu hálfa öldina en á nokkru öðru 50 ára tímabili síðustu 500 ár. Tíðar fréttir hafa borist af bæði illviðrum og hitabylgjum í heiminum, nú síðast í Suðaustur-Asíu þar sem metúrkoma hefur fallið og valdið miklu tjóni. Sömu sögu er að segja af Englandi og Wales þar sem miklar rigningar hafa verið í sumar með tilheyrandi flóðum. Í Suður-Evrópu var á sama tíma hitabylgja sem dró fjölda manna til bana og þá er varað við hitabylgju víða í Bandaríkjunum þessa dagana.
Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Erlent Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Erlent Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Fleiri fréttir Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Sjá meira