Á toppinn í fyrsta sinn í fimm ár 2. september 2007 11:00 Leikmenn Liverpool fara á kostum þessa dagana og þeir settu sex bolta í netið hjá Derby í gær. Hér fagna leikmenn Liverpool glæsilegu marki Ryans Babel. getty
Liverpool byrjar leiktíðina í Englandi með miklum látum og er heitasta liðið á Bretlandseyjum um þessar mundir. Strákarnir hans Benitez voru sjóðheitir í gær þegar Derby kom í heimsókn, lokatölur 6-0, en þetta er stærsti sigur liðsins á Anfield síðan 1999. Nýju leikmennirnir voru áberandi og komust þrír þeirra á blað. Liverpool er þar með komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fyrsta skipti í fimm ár en Chelsea gæti velt liðinu af stalli í dag með sigri á Aston Villa. „Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik, fundum svæði, spiluðum boltanum vel og það var frábær hreyfing á boltalausum mönnum. Ég er ánægður með öll mörkin en markið hans Babels var líklega flottast. Það er gaman að sjá Torres halda áfram að skora. Voronin var fljótur að aðlagast leikkerfinu. Ég hefði viljað sjá Kuyt skora því hann lagði svo mikið á sig og átti það skilið,“ sagði glaðbeittur stjóri Liverpool, Rafa Benitez. Raunir Tottenham eru ekki á enda en liðið tapaði 3-1 forystu gegn Fulham niður í jafntefli. Martin Jol, stjóri Spurs, var brjálaður út í varnarmenn sína eftir leikinn. „Það gengur ekki að fá á sig mörk eins og við gerðum, til að mynda úr innkasti. Við verðum að draga úr þessum mistökum því þau gera okkur erfitt fyrir að vinna leiki. Ég get ekki sagt eftir hvern leik að við séum óheppnir en við verðum að verjast betur,“ sagði Jol. Michael Owen skoraði sitt fyrsta mark á St. James"s Park í tvö ár í gær þegar hann tryggði Newcastle sigur á Wigan. Þetta var annað mark Owen í tveim leikjum og hann er allur að koma til. „Það er alltaf gott að spila 90 mínútur og enda síðan daginn á því að skora sigurmarkið. Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í fótbolta,“ sagði Owen brosmildur en Steve McClaren landsliðsþjálfari var á vellinum og sá hann skora. Leikmenn West Ham duttu í gírinn í gær er þeir rúlluðu Reading upp, 3-0, en Reading er ekki að spjara sig jafn vel og síðasta vetur. „Ég er gríðarlega ánægður með strákana sem eru að koma inn í liðið enda eru mikil meiðsli í okkar herbúðum. Þetta var mikilvægur sigur til að rífa sig frá neðri hlutanum,“ sagði Alan Curbishley, stjóri West Ham.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Sjá meira