Erlent

Óttaðist arabískumælandi menn

Stanslausar kvartanir farþega í flugvél á þriðjudagskvöld urðu til þess að fresta þurfti fluginu þar til morguninn eftir. Kona nokkur var óánægð með sex karlmenn sem töluðu arabísku í flugvélinni, sem fljúga átti frá San Diego til Chicago í Bandaríkjunum.

Flugvélin þurfti að snúa aftur til flugstöðvarinnar og hætta við flugtak og voru mennirnir sex og konan yfirheyrð. Í ljós kom að mennirnir voru bandarískir, af íröskum uppruna. Þeir höfðu allir verið í æfingabúðum Bandaríkjahers og voru á leið til að taka þátt í stríðinu í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×