Erlent

Undirforingi ákærður

Saksóknarar í Rússlandi birtu á miðvikudag hermanni ákæru fyrir að bera ábyrgð á dauða nýliða í hernum, sem að sögn var barinn af tveimur drukknum undirforingjum og skilinn eftir í hundabúri yfir nótt.

Nýliðinn, Sergei Sinkonen, lést af sárum sínum á sjúkrahúsi á mánudag, tveimur vikum eftir að hann fannst í blóði sínu. Málið hefur vakið athygli á ófremdarástandi í rússneska hernum, þar sem ofbeldi er landlægt, einkum gegn nýliðum. Hundruð nýliða og annarra hermanna láta lífið árlega af völdum níðingsofbeldis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×